Liðsmenn bresku rokksveitarinnar Rolling Stones hafa loks endanlega staðfest að ný plata sé væntanleg.Mick Jagger, Keith Richards og Ronnie Wood um það leyti sem Hackney Diamonds kom út.EPA / TOLGA AKMENUndanfarinn mánuð eða svo hafa birst leyndardómsfullar myndir og óræðir póstar á samfélagsmiðlum sem kveiktu orðróm um að eitthvað þessu líkt væri í bígerð hjá sveitinni sem hefur starfað óslitið frá árinu 1962.Þrjú ár eru liðin frá því platan Hackney Diamonds leit dagsins ljós. Þeir Mick Jagger, Ronnie Wood og Keith Richards birtu loks í gær hugmyndir sínar að forsíðumynd nýju plötunnar Foreign Tongues, sem kemur út 10. júlí.