Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ísraelsher skemmdi kaþólskt nunnuklaustur í Líbanon

Hið minnsta þrír voru drepnir í stórfelldum loftárásum Ísraelshers á bæ í Tyre-héraði í Líbanon sunnanverðu í gær. Ríkisfréttastöðin NNA greinir frá þessu.Reykur stígur til himins eftir stórskotaliðsárás Ísraelshers á þorp í sunnanverðu Líbanon 28. apríl.EPA / ATEF SAFADIFrönsku líknarsamtökin L'Oeuvre d'Orient fordæma árás Ísraelshers sem vísvitandi eyðilagði grísk-kaþólskt nunnuklaustur í þorpinu Yaroun.Talsmaður hersins viðurkennir árásina og segir klaustrið hafa skemmst í atlögu að innviðum Hezbollah-hreyfingarinnar. Hann segir jafnframt að herinn hafi grandað um það bil sjötíu hernaðarmannvirkjum og öðrum byggingum hreyfingarinnar um gervallt Líbanon sunnanvert í gær.
Ísraelsher skemmdi kaþólskt nunnuklaustur í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta