Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump segir miklu fleiri en fimm þúsund hermenn verða kallaða brott frá Þýskalandi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að miklu fleiri en fimm þúsund hermenn verði kallaðir brott frá Þýskalandi. Hann tíundaði það ekki frekar eftir að fréttamenn inntu hann svara um ákvörðun stríðsmálaráðuneytisins að fækka um þann fjölda hermanna á næstu mánuðum.Trump hafði hótað að draga úr herstyrk Bandaríkjanna í Þýskalandi vegna deilna við Friedrich Merz kanslara um afstöðu hans til stríðsins gegn Íran. Merz ergði Trump sérstaklega með því að segja Írana hafa lítillækkað Bandaríkin við samningaborðið.Trump sagði í færslu á Truth Social meðal annars að Merz ætti að einbeita sér að vandamálum heima fyrir frekar en að skipta sér af þeim sem ætli að losa heiminn við kjarnorkuógnina frá Íran.Talskona Atlantshafsbandalagsins sagði í yfirlýsingu í gær að unnið væri að því með Bandaríkjamönn
Trump segir miklu fleiri en fimm þúsund hermenn verða kallaða brott frá Þýskalandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta