Íranskir ráðamenn segja það undir Bandaríkjamönnum sjálfum komið hvort styrjaldarátök hefjist á ný eða að komist verði að friðarsamkomulagi. Íranar væru reiðubúnir hvorri leiðinni sem farin yrði, til að tryggja öryggi landsins og þjóðarhag.Aðstoðarutanríkisráðherrann Kazem Gharibabadi lét þessi orð falla í samtali við erlenda sendimenn í Teheran að sögn ríkisfréttastofunnar IRIB.Donald Trump Bandaríkjaforseti kvaðst í færslu á Truth Social senn ætla að yfirfara friðarumleitanir Írana þótt hann væri efins um að hann gæti fallist á þær. „Þeir hafa ekki enn goldið nægilega háu verði brot sín gegn mannkyni seinustu 47 ár,“ skrifaði Trump.Enn hefur fátt verið látið upp um innihald tillagnanna en vefritið Axios segir að erindrekinn Steve Witkoff hafi krafist þess að ákvæði um kjarnorkuáætlun Íra