Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Diaz-Canel biðlar til heimsbyggðarinnar um liðsinni gegn hótunum Trumps

Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti biðlar til heimsbyggðarinnar að bregðast við hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um næstum umsvifalausa innrás. Hann hefur áður hótað aðgerðum gegn landinu. Diaz-Canel sagði í færslu á X ógnina frá Bandaríkjunum aukast dag frá degi.„Alþjóðasamfélagið verður að ákveða hvort slík ofbeldisfull glæpastarfsemi verði leyfð til þess eins að efla hagsmuni lítils en auðugs og áhrifamikils hóps, þeirra sem leita hefnda og kúgunar,“ skrifaði Diaz-Canel.Trump undirritaði tilskipun á föstudag þar sem enn er hert á viðskiptaþvingunum gegn Kúbu og hótaði innrás í ræðu. Djúp orkukreppa fylgir hafnbanni sem Trump setti á afhendingu olíu frá Venesúela í janúar ásamt miklum matvæla- og lyfjaskorti.Bandaríkin settu viðskiptabann á Kúbu árið 1962, sem enn er í gildi. Enn var h
Diaz-Canel biðlar til heimsbyggðarinnar um liðsinni gegn hótunum Trumps

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta