Mikill fjöldi fólks gerði sér ferð í verslunina Nexus í Glæsibæ í dag í tilefni Ókeypis myndasögudagsins. Löng röð hafði myndast fyrir utan verslunina áður en dyrnar opnuðu.Dagurinn er haldinn á ári hverju og er hluti af alþjóðlega framtakinu Free Comic Book Day, en myndasöguútgefendur gefa út blöð sérstaklega fyrir daginn.Á staðnum voru einnig íslenskir myndasöguhöfundar, eins og Atla Hrafney Önnudóttir. Hún segir mikið af fólki hérlendis vinna að teiknimyndasögum, og líklega fleiri en fyrir 5-10 árum.„Núna erum við að sjá höfunda sem eru kannski tilbúnir til þess að búa til stærri bækur en eru ekki alveg komnir til móts við útgáfur. Það er kannski svona næsta skref, að ná til útgefenda og segja þeim: hér erum við, hér eru sögurnar sem við erum með,“ segir Atla Hrafney.