Erindrekar yfir fimmtíu landa komu saman í Kólumbíu á fyrstu alþjóðlegu loftslagsráðstefnunni sem snýr nánast eingöngu að orkuskiptum og hvernig hægt sé að hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Fulltrúar frumbyggja Suður-Ameríku segja mikilvægt að við orkuskiptin verði stutt við þær þjóðir sem reiða sig á útflutning jarðefnaeldsneytis.„Við setjum fram ýmsar kröfur, meðal annars að fjárstuðningur vegna orkuskiptanna nái til okkar landa og þjóða, segir Patricia Suarez, talsmaður frumbyggja Suður-Ameríku. Þau krefjast réttlætis fyrir þau sem eru nú að kljást við afleiðingar gróðurhúsalofttegunda og loftslagsbreytinga sem aðrar þjóðir bera mesta ábyrgð á.“Efnt var til kröfugöngu og þess krafist að lönd sem flytja út og selja jarðefnaeldsneyti til annarra þjóða verði ekki látin bera hitann og þungan