Formaður Félags pípulagningameistara segir óveðurský hrannast upp í greininni sökum samdráttar á byggingamarkaði, þá sér í lagi nýbygginga. Félagsmenn séu þegar farnir að finna fyrir því. Hann telur lóðabrask, verðbólgu og háa stýrivexti því að kenna að píparar missi vinnuna.„Það er farið að bera á uppsögnum,“ segir Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara. Hann segir að víðs vegar um land, en sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, verði vart við mikinn samdrátt í greininni.„Menn hafa verið vanir að sjá marga mánuði fram í tímann, jafnvel ár vel mannað í verkum og þess háttar. En nú eru menn að sjá fram á það að þeir vita ekki einu sinni hvernig sumarið verður. Og það er áhyggjuefni,“ segir hann.Farið sé að bera á því að nemendur í pípulagningum eigi í erfiðleikum með að k