Fjölmennt lið lögreglu er við félagsheimili Hells Angels í Auðbrekku í Kópavogi. Samtökin halda upp á afmæli sitt og hafa boðið félögum í öðrum bifhjólasamtökum að taka þátt.Lögregla fylgist með því sem fram fer í veislunni, tekur niður nöfn þeirra sem mæta á staðinn og leitar á fólki.Lögreglan hefur áður haft mikinn viðbúnað þegar Hells Angels hafa verið með samkomur. Það gerðist í tvígang í september. Þá sagði fulltrúi lögreglu að full ástæða væri fyrir slíkum viðbúnaði þar sem samtökin ástunduðu skipulagða brotastarfsemi.Einn félaganna sagði í viðtali við fréttastofu í kvöld að vinum og ættingjum hefði verið boðið til veislunnar til að halda upp á afmælið. Hann sagði að félögum úr öðrum íslenskum bifhjólahópum væri boðið en að engir gestir kæmu frá útlöndum.