Það var hún Emilía Sigurjónsdóttir, 98 ára, sem var lögð til hinstu hvílu í heimahaganum liðna helgi. Síðast var jarðað í Flateyjarkirkjugarði árið 1957. Hún var flutt, ásamt aðstandendum og presti, með eikarskipinu Sylvíu frá Húsavík til Flateyjar, þar sem útförin fór fram frá Flateyjarkirkju. Siglingin til eyjunnar tekur um 90 mínútur.„Þetta var amma okkar, Emilía Sigurjónsdóttir, frá Miðgörðum í Flatey. Hún fæddist og ólst upp í Flatey á Skjálfanda. Hugur hennar var alltaf í eyjunni,“ segir Gunnar Hnefill Örlygsson, barnabarn Emilíu. BYGGÐ LAGÐIST AF ÁRIÐ 1967 Árið 1967 voru fimm fjölskyldur sem bjuggu í Flatey á Skjálfanda en ákváðu sama ár að flytja í land. Fólki hafði fækkað hratt á sjötta áratugnum sökum einangrunar en blómleg byggð hafði verið fyrir miðja tuttugustu öldina. Þega