Utanvegahlaupið The Puffin Run fór fram í Vestmannaeyjum í dag. Ferðaáætlanir margra brugðust þar sem ekki var hægt að sigla milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.Arnar Pétursson varð fyrstur í mark á einni klukkustund, fimmtán mínútum og ellefu sekúndum. 80 sekúndum síðar fór Þorbergur Jónsson yfir endalínuna.Andrea Kolbeinsdóttir kláraði hlaupið á einni klukkustund, 20 mínútum og tveimur sekúndum sem er nýtt brautarmet í kvennaflokki.Magnús Bragason, aðstandandi hlaupsins, var ánægður með hvernig til tókst eftir óvissu síðustu daga og vikna fyrir hlaup.„Þetta er búinn að vera frábær dagur. Það er búið að vera æðislega gaman. Það voru 700 manns sem hlupu í dag og allir glaðir. Við fengum frábært veður í morgun, síðan dró aðeins ský fyrir sólu, en það er búið að vera æðislega gaman.“Uppsel