Albanskur karlmaður var fyrir helgi dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti. Hann var upphaflega ákærður fyrir brot af ásetningi en játaði sök þegar ákærunni var breytt í brot af gáleysi.Maðurinn var sakfelldur fyrir að taka við samtals 9.950 evrum í reiðufé af óþekktum einstaklingi eða einstaklingum. Þetta fé var síðan falið í skóm sem komið var fyrir í pakka sem maðurinn reyndi að senda í pósti til Albaníu.Upphæðin er andvirði rúmlega 1,4 milljóna króna.Upp komst um tilraunina til að koma peningunum úr landi og var maðurinn ákærður fyrir að taka við fé sem væri ávinningur af lögbrotum. Ekki kemur fram í dóminum yfir manninum hvers konar lögbrot það eru.Maðurinn var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi. Hann var dæmdur til 30 daga fangelsisvistar sem er ski