Hér fer fram bein textalýsing frá leik Arsenal og Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Arsenal getur með sigri í dag náð sex stiga forystu á toppi deildarinnar og varpað pressunni yfir á City sem mun þó eiga inni tvo leiki til góða. Toppbarátta deildarinnar er í algleymingi. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport og hefst klukkan hálf fimm.