Flugfélagið Icelandair hefur lokað fyrir umsóknir í leit sinni að „virkilega slæmum ljósmyndara“ en áhuginn á verkefninu var miklu meiri en upphaflega var áætlað. Verkefnið snýst um að sanna að jafnvel versti ljósmyndari geti tekið frábærar myndir af Íslandi.