Samkvæmt reglugerð innviðaráðuneytisins er úthlutun til strandveiða tíu þúsund sex hundruð og fimmtíu tonn af þorski miðað við ellefu þúsund tonn árið á undan. Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að úthlutunin hafi vakið kurr meðal smábátasjómanna en ekki sé þörf á að örvænta.„Við vitum það þó að það eru 2700 tonn ofan á þetta úr frumvarpinu í sambandi við jöfnunarheimild þannig að þá erum við komin upp í 13350 sem er meira en það var í fyrra,“ segir Kjartan. Þá gerir hann fastlega ráð fyrir því að eitthvað komi úr skiptimörkuðum líka. Tveir slíkir eru eftir fyrir íslenska sumargotssíld og makríl.„Þannig að það bara stefnir í metár hjá okkur eftir nokkur mögur sumur,“ segir Kjartan.Strandveiðar geta hafist á mánudaginn 4. maí. Kjartan telur undarlegt að úthlutun