Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Umfangsmeiri viðbrögð nauðsynleg á Kristnesi og brýnt að taka ákvörðun

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar óttast að stefnt sé að því að færa endurhæfingarstarf Kristnesspítala annað, en telur að ekki verði hægt að byggja upp álíka aðstöðu annars staðar gædda sömu kostum. Nauðsynlegt sé að taka ákvörðun um framtíðina hið fyrsta. Sjúkrahúsið á Akureyri rekur þar endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild.Eftir að mygla greindist í húsnæði spítalans var ráðist í frekari greiningar. Húsnæði starfsmanna hefur nú verið metið óheilnæmt. Ríkið á um 20 íbúðir á svæðinu og búið er í 11 þeirra. Starfsmönnum hefur verið ráðlagt að flytja út sem fyrst.Á fundi sínum á fimmtudag ítrekaði sveitarstjórn afstöðu sína að hún leggist gegn því að starfsemin á Kristnesi verði lögð af. Ef slík ákvörðun verði tekin sé hins vegar brýnt að hún liggi fyrir fljótt og örugglega. Það sé nauðsy
Umfangsmeiri viðbrögð nauðsynleg á Kristnesi og brýnt að taka ákvörðun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta