Hætta er á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu. Í gær komu upp nokkrir minni háttar gróðureldar og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er við öllu búið í dag.Stefán Kristinsson varðstjóri telur að gróðureldarnir í gær hafi verið fimm eða sex talsins. Vegna þurrks er möguleiki á að fleiri gróðureldar kvikni í dag.„Það er möguleiki á að eitthvað gerist en við vonumst til að þetta verði lítið eins og í gær,“ segir hann.Útlit er fyrir þurrk.„En það vinnur með okkur að það er ekki mikill vindur. Svo við vonumst til að þetta sleppi allt til og fólk haldi sig heima, sé ekki að kveikja í viljandi,“ segir Stefán.Slökkviliðið leggst alfarið gegn því að fólk sé með eld úti í náttúrunni núna. „Það er út úr kortinu og hættulegt. Það er betra að fara bara í sund.“