Nokkuð hvöss suðvestanátt verður ríkjandi á landinu í dag með stöku skúrum eða éljum. Vindur verður á bilinu 8-15 m/s og hvassast norðvestantil. Hitinn á bilinu 3-9 stig. Á austanverðu landinu verður þurrt og bjart fram eftir degi.Lægir í kvöld og nótt og kólnar.Á morgun er útlit fyrir hæga norðaustlæga eða breytilega átt. Yfirleitt verður bjart veður á Suðvestur- og Vesturlandi en suðaustantil má gera ráð fyrir stöku éljum.