Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég hef alltaf verið smá smeykur við að syngja sjálfur“

„Ég var að reyna að gera eitthvað sem ég hafði ekki heyrt áður og vildi kannski bara svolítið hlusta á sjálfur, sko,“ segir Friðrik Margrétar-Guðmundsson, þegar hann er spurður að því úr hverju lögin spretti. Ymur er önnur plata Friðriks en árið 2020 gaf hann út plötuna Skipholt.Hann segir plöturnar tvær vera talsvert ólíkar. Sú fyrri er útskriftarverkefni úr Listaháskólanum og átti meira skylt við klassíska tónlist en sú nýja.„Ymur er hins vegar verkefni sem hefur verið með mér mjög lengi. Eiginlega bara næstum því í heilan áratug. Þetta eru lög sem hafa legið í skúffunni að mestu leyti í svolítið langan tíma og er þá meira eitthvað sem ég er að gera allt sjálfur og með tækni sem er svolítið þægilegt að vinna með þegar maður er bara einn. Þetta er mest gert í forritum og með synthum og hl
„Ég hef alltaf verið smá smeykur við að syngja sjálfur“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta