Breski forsætisráðherrann Keir Starmer sagði í viðtali á BBC réttlætanlegt að banna sumar samkomur til stuðnings Palestínumönnum, ekki síst ef hvatt er til uppreisnar eða intifada um allan heim.Algengt er að kyrjað sé „heimsvæðum intifada“ á mótmælasamkomum á Bretlandseyjum. Intifada nær yfir borgaralega uppreisn Palestínumanna gegn Ísrael á árunum 1987 til 1993 og aftur á fyrri hluta þessarar aldar. Samtök gyðinga í Bretlandi álíta slagorðið afar hættulegt, að sögn Starmers.Keir Starmer hefur verið brýndur til að bregðast við vegna vaxandi gyðingaandúðar á Bretlandseyjum, meðal annars eftir hnífaárás á tvo gyðinga í norðurhluta Lundúna í vikunni. Ráðherra heimsótti vettvang glæpsins þar sem íbúar bauluðu á hann og sökuðu hann um að gera ekki nóg til verndar þeim.Starmer starfaði lengi sem