Rétt er að vara við lýsingum á kynferðisofbeldi sem koma fram í þessari umfjöllun. „Ég held að ég muni alla ævi fá sting í hjartað og gráta þegar ég tala um þetta,“ segir íslensk kona, sem leiddist út í vændi fyrir nokkrum árum. Hún komst út úr vændinu einu og hálfu ári síðar en segir að afleiðingarnar af því muni fylgja sér alla ævi. Það séu langvarandi áhrif á sál og líkama.„Það eru afleiðingar á meðan þessu stendur og eftir á, sem geta verið alls konar. Í samskiptum við maka, í persónulegu lífi, að treysta. Að vera stöðugt á varðbergi að missa ekki virði sitt. Og til langs tíma, ég gat ekki fætt barnið mitt eðlilega eftir þetta. Ég valdi að fara í keisaraaðgerð, þar sem ég vissi allt fyrir fram. Það þurfti allt að vera fyrir fram ákveðið svo ég gæti undirbúið mig.“Konan sagði sögu sína