Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ökumanns sem reyndi að stinga af bíður kæra vegna fjölda umferðarlagabrota

Ölvaður ökumaður sem reyndi að stinga lögregluna af í gærkvöld eða í nótt má búast við kæru vegna fjölmargra umferðarlagabrota.Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már EiðssonMaðurinn var handtekinn líkt og tveir aðrir sem höfðu uppi ógnandi tilburði við meðborgara sína í miðborginni. Að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var ástand þeirra svo slæmt að beita þurfti þá lögreglutökum uns þeir voru komnir í fangaklefa.Alls sjö gistu fangaklefa í morgun. Eitt ungmenni var flutt á lögreglustöð og sótt þangað af forráðamönnum eftir slagsmál í miðborginni. Auk þessa hafði lögregla afskipti af ökumönnum í ýmsu ástandi og sektaði nokkra sem óku talsvert yfir hámarkshraða.
Ökumanns sem reyndi að stinga af bíður kæra vegna fjölda umferðarlagabrota

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta