Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ný þota Trumps — gjöf frá Katar — verður senn tilbúin

Boeing 747 risaþotan sem stjórnvöld í Katar gáfu Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir tæpu ári hefur staðist tilraunaflug og verður tilbúin til notkunar í sumar.Núverandi þota Bandaríkjaforseta.EPA / MICHAEL BUHOLZERBandaríski flugherinn greinir frá og segir verið að mála hana í nýjum opinberum litum forsetaembættisins, rauðum, hvítum og bláum. Þegar greint var frá gjöfinni, sem er hundraða milljóna dala virði, var bent á að þingið þyrfti að samþykkja allar gjafir frá erlendum ríkjum.Þotan er sögð innréttuð eins og höll og það að erlent ríki láti hana í té hefur kveikt siðferðilegar og lagalegar spurningar ásamt efasemdum um að öryggissjónarmið hafi verið látin ráða för þegar gjöfin var þegin.
Ný þota Trumps — gjöf frá Katar — verður senn tilbúin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta