Gul reiðhjól hafa verið sett upp nærri þeim stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem alvarleg umferðarslys hafa orðið á undanförnum vikum. „Þeim slysum hefur farið fjölgandi í haust og vetur og því full ástæða til að bregðast við þeirri þróun,“ segir í tilkynningu Reiðhjólabænda, samtaka reiðhjólaeigenda.Hjólin eru sjónræn einkenni, hluti vitundarvakningar fyrir bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem Reiðhjólabændur standa að með stuðningi Samgöngustofu, Sjóvár, FÍB, ÍSÍ og flestra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.Samkvæmt tilkynningunni er markmiðið að fá bílstjóra meðal annars til að nema staðar á gangbrautum og rauðum ljósum, aka á löglegum hraða, láta símann eiga sig og vera meðvitaðir um annað fólk í umferðinni. Gulu hjólin eiga að hvetja til varkárni þar sem leiðir ólík