Bílaverkstæðið Officine Gentile í ítölsku borginni Tórínó, heimaborg bílaframleiðandans Fíat, hefur um nokkurt skeið gert upp og sett rafmagnsvélar í eldgamla, klassíska Fíat 500 bíla.Um það bil 4,2 milljónir Fíata þessarar gerðar voru framleiddir milli 1957 og 1975 og eru fyrir löngu orðnir táknmynd fallegrar hönnunar.Giovanni Gentile, eigandi verkstæðisins, kveðst með breytingunni vilja færa þessi litlu farartæki inn í 21. öldina og fyrir utan standa þau í röðum í misgóðu ástandi og bíða þess að öðlast nýtt líf.Margir eru sprautaðir í pastellitum og sumum breytt í blæjubíla. Hleðslutengið er falið bak við Fíat-merkið framan á bílunum. Rafdrifinn og uppgerður Fíat 500 með blæju kostar jafnvirði rúmra ellefu milljóna króna en hinir á bilinu tæplega sex til rúmlega sjö milljóna.Fíat 500 er