Samtökin Stay Free Alberta segjast þegar hafa safnað nægum undirskriftum og hyggjast leggja listann fyrir fylkisstjórnina í Edmonton á mánudag.Þeim var veitt ráðrúm til að safna þeim 178 þúsund meðmælendum sem þarf til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu snemma árs eftir að hafa lagt fram formlega beiðni þess efnis. Formaðurinn Mitch Sylvestre kveðst bjartsýnn á að af atkvæðagreiðslu verði.Skoðanakannanir benda til að sjálfstæðiskrafan njóti minnihlutastuðnings fimm milljóna íbúa fylkisins þótt óánægja hafi aukist með stjórn og meðferð alríkisins á olíuiðnaðnum þar.Samtök frumbyggja óttast að sjálfstæði ógni stjórnarskrárvörðum rétti þeirra og hafa lagt fram kröfu um ógildingu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, komi til hennar. AFP hefur eftir nokkrum sérfræðingum að stjórnmálalandslagið breytist