Lögmenn serbneska stríðsglæpamannsins Ratko Mladić hafa farið fram á að hann verði látinn laus úr fangelsi enda sé hann mikið veikur og eigi ekki langt eftir ólifað. Mladić er 84 ára og situr í fangelsi á vegum Sameinuðu þjóðanna í hollensku borginni Haag. Hann hafi fengið slag fyrir skemmstu og geti nær ekkert tjáð sig. Fram að því hafi Mladić ýmist verið rúmliggjandi eða setið í hjólastól. Því þurfi hann að komast á heilbrigðisstofnun þar sem starfsfólk tali serbnesku og að lokum til heimalandsins. Niðurstöðu dómstóls Sameinuðu þjóðanna þess efnis er beðið en bosnísk samtök eftirlifenda og fórnarlamba Mladićs eru algerlega andvíg frelsun hans. Beiðni lögmannanna sé ekki af mannúðarástæðum, þeir hafi reynt áður að fá fangann lausan með svipuðum rökum. Serbneska dómsmálaráðuneytið kveðst g