Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum stöðvaði í gær tímabundið póstsendingar og afhendingu þungunarrofslyfsins mífepristóns í lyfjaverslunum.Mífepristón er mest notaða þungunarrofslyfið í landinu og samkvæmt úrskurðinum þurfa allar bandarískar konur sem hyggja á þungunarrof að nálgast það í eigin persónu á heilbrigðisstofnunum.Dómstóllinn, skipaður þremur íhaldssömum dómurum, sneri þannig við úrskurði lægra dómstigs sem heimilaði póstsendingu á lyfinu meðan Matvæla- og lyfjaeftirlitið endurskoðaði reglur um notkun þess.Eftirlitið heimilaði notkun lyfsins fyrst árið 2000. Louisiana-ríki, þar sem einhver ströngustu lög um þungunarrof gilda, höfðaði mál gegn stofnuninni. Talsmenn þess að rannsaka þurfi öryggi mífepristóns hafa máli sínu til stuðnings vitnað í óritrýnda rannsókn hugveitu, sem bir