Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gervigreindin fær ekki boð á Óskarinn

Persónur sem leiknar eru af gervigreind eru ekki gjaldgengar til tilnefningar á Óskarsverðlaunahátíðinni. Að sama skapi getur spunagreind ekki hlotið Óskarstilnefningu fyrir að skrifa kvikmyndahandrit.Bandaríska Kvikmyndaakademían, sem heldur Óskarinn, greindi frá þessu í dag.Nýjar reglur akademíunnar kveða á um að aðeins raunverulegir, lifandi leikarar geti fengið tilnefningu og að kvikmyndahandrit verði að vera skrifað af manneskju en ekki spjallmenni. Í flokki leikara eru það aðeins hlutverk sem skráð eru í formlegri skráningu og eru greinilega leikin af fólki, og með þeirra leyfi, sem eru gjaldgeng.Nú á dögunum var frumsýnd kvikmyndin As Deep as the Grave (Djúp sem gröfin) en spunagreind var notuð til að skapa persónu er byggði á persónueinkennum leikarans Val Kilmers fyrir kvikmyndina
Gervigreindin fær ekki boð á Óskarinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta