Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Húsgögn til sölu á djasshátíð til styrktar Alzheimersamtökunum

Djasshátíðin Jazzþorpið í Garðabæ hófst í gær og varir fram yfir sunnudag. Hátíðin, sem er í Garðatorgi, var haldin í fyrsta sinn árið 2023. Ómar Guðjónsson, listrænn stjórnandi Jazzþorpsins, segir gæðamúsík óma á hátíðinni frá hádegi til kvölds.„Garðabær heldur þessa hátíð núna í fjórða sinn og er þetta veglegra út af 50 ára afmæli Garðabæjar. Einnig erum við alltaf með þessi húsgögn sem eru öll til styrktar Alzheimersamtökunum,“ segir Ómar. Þeir sem gera sér ferð á hátíðina geta því hlustað á lifandi djasstónlist og fest sér kaup á húsgögnum í þágu góðs málefnis.
Húsgögn til sölu á djasshátíð til styrktar Alzheimersamtökunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta