Formaður Vinstri grænna segir flokkinn tala skýrt inn í tómarúm sem myndast hafi í íslensku stjórnmálaumhverfi. Flokkurinn mælist inni á þingi í fyrsta sinn í rúm tvö ár í Þjóðarpúlsi Gallup.Samkvæmt könnunninni um fylgi flokka í apríl mælast Vinstri græn með fimm komma eitt prósent fylgi og fengi þrjá þingmenn.Vinstri græn duttu út af þingi í síðustu kosningum og hefur ekki mælst inni síðan í mars 2024. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörinn nýr formaður flokksins á landsfundi í byrjun mars. Hún segir niðurstöðu hennar gefa góð fyrirheit.„Ég held að við séum bara rétt að byrja og við finnum bara þessa hreyfingu og meðbyr með okkur. Þetta eru góð tíðindi og við erum gríðarlega ánægð með að sjá þessar tölur. Það gefur okkur bara meðbyr með okkur næstu tvær vikurnar og svo áfram veginn.“Að m