Halla Gunnarsdóttir formaður VR lýsti því yfir í ræðu sinni á baráttufundi verkalýðsfélaga á Ingólfstorgi í dag að núverandi efnahagsástand gæti hæglega orðið til þess að kjarasamningar myndu losna í haust.Sem stendur mælist verðbólga í 5,2% og ef hún mælist 4,7% eða hærri í september virkjast forsenduákvæði kjarasamninga.Þá varaði hún einnig við því að í okkar heimshluta stæði yfir skipulagt niðurbrot á stéttarfélögum og réttindum launafólks.„Spítalar, bókasöfn, leikhús, vegir, skólar, ekkert er heilagt þegar hugmyndafræði niðurskurðarins er annars vegar. Sumu er lokað, annað látið grotna niður,“ sagði Halla sem tók fram að þetta væri ekki vera vegna skorts á fjármunum þar sem nóg væri til en þeir væru markvisst færðir frá vinnandi fólk, frá þeim sem eiga lítið eða ekkert og til hinna all