Hátt í fjögur þúsund manns var gert að yfirgefa heimili sín í Toskana-héraði á Ítalíu í dag vegna skógarelda sem þar geisa.Yfir átta hundruð hektarar hafa orðið eldunum að bráð í Toskana að síðustu daga, í fjöllunum milli borganna Lucca og Pisa. Átta hundruð hektarar eru á við eitt þúsund fótboltavelli.Skógareldar eru algengir á Ítalíu en hefjast yfirleitt síðar á sumarmánuðum. Talið er að óvenjumikil hlýindi í veðri miðað við árstíma hafi hrint eldunum fyrr af stað en ella. Þá hafa sterkir vindar undanfarna daga ýtt enn fremur undir útbreiðslu þeirra.Í yfirlýsingu frá bæjarfélaginu San Giuliano Terme segir að ítölsk yfirvöld hafi flutt um þrjú þúsund og fimm hundruð manns brott af heimilum sínum vegna eldanna. Þar á meðal þurfti að rýma tvær líkamsræktarstöðvar þar sem rúmlega hundrað fló