Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stefnt að því að hefja dýpkun í Landeyjahöfn í dag

Ákvörðun um að ferjan Baldur yrði fengin til að leysa Herjólf af var tekin með stuttum fyrirvara, segir upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Stefnt er að því að hefja dýpkun í Landeyjahöfn í dag.Breiðarfjarðaferjan Baldur leysir Herjólf af næstu daga og siglir á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Í samtali við fréttastofu í gær gerði bæjarstjóri Vesturbyggðar athugasemd við það að ekkert samráð hafi verið haft við sveitarfélagið þegar þessi ákvörðun var tekin.G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að vegna aðstæðna í Vestmannaeyjum hafi þurft að taka ákvörðun hratt.„Þetta eru náttúrulega mjög óvenjulegar aðstæður og við reynum af fremsta megni að hafa sem best samráð við alla aðila. Það er frekar óheppilegt að það þurfti að taka þessa ákvörðun svona hratt,“ segir
Stefnt að því að hefja dýpkun í Landeyjahöfn í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta