Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir áform núverandi ríkisstjórnar valda sér og öðrum innan verkalýðshreyfingarinnar áhyggjum og nefnir hún styttingu tímabils atvinnuleysisbóta og lengingu ávinningstíma sem dæmi. Þá nefnir hún einnig afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna. „En það sem er eiginlega hvað verst í þessu er að við höfum almennt verið sammála um það í þessu þríhliða samtali að við viljum byggja ákvarðanir á bestu stöðu þekkingar,“ segir Sonja Ýr í sérstökum umræðuþætti á Rás 1 í tilefni 1. maí, alþjóðlegs baráttudags verkalýðsfólks. Hún vísar þar í þríhliða samtal stjórnvalda, atvinnurekenda og launafólks.„Núna er verið að taka ákvarðanir án þess að meta áhrifin, án þess að draga fram þekkinguna, án þess að taka samtalið eða samráðið og þá auðvitað verður þetta afleit