Sextíu daga frestur sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur til að fá samþykki þingsins fyrir stríðinu í Íran rennur út í dag. Þingmenn eru hins vegar ekki á einu máli um túlkun þessa ákvæðis. Sumir stjórnarþingmenn líta svo á að stríðinu hafi lokið þegar yfirstandandi vopnahlé tók gildi.Í lögum sem sett voru 1973 eftir Víetnamsstríðið ber Bandaríkjaforseta að fá samþykki þingsins fyrir áframhaldandi stríðsrekstri sextíu dögum frá því tilkynning um hann barst og slíkur stríðsrekstur sé aðeins heimill ef ógn steðjar að landinu. Ef samþykki fæst ekki fyrir þann tíma ber forsetanum að hætta öllum hernaði þegar í stað. Tilkynningin um stríðið í Íran kom annan mars og því ætti þessi frestur að renna út í dag.Stjórnvöld í Bandaríkjunum túlka þetta þó á annan veg. Hátt settur embættismaður sagði