Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir alvarlegt mál að eftirlit verði haft með olíufélögunum næstu mánuði vegna tímabundinna efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar. Lækkun á bensínverði muni alltaf skila sér til neytenda.Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr dælu, úr 24 prósentum í 11, tók gildi í dag. Með þessari aðgerð er ríkisstjórnin að bregðast við verðhækkunum á olíu á heimsvísu, og varir lækkunin fram í ágúst. Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, telur að markmiðum stjórnvalda verði náð með þessu.„Við höfum metið þetta sem svo að þetta sé aðgerð sem að stjórnvöld geta gripið til og bent á að þetta er mjög target-uð aðgerð sem að beinist í raun og veru beint að neytendum, eiga að skila þeim í raun og veru þeim hagsbótum sem ætlunin er og tiltölulega ein