Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir Jón Gnarr ekki hafa sent reikning á Ríkisútvarpið vegna umdeilds grínatriðis í Vikunni með Gísla Marteini og þar af leiðandi hafi hann ekki fengið greitt fyrir það. Hefði hann sent reikning hefði hann, líkt og aðrir listamenn sem koma fram í þáttunum, fengið laun.