Borgarbyggð gengur nú í fyrsta skipti til kosninga eftir sameiningu við Skorradalshrepp. Töluverð uppbygging hefur átt sér stað á kjörtímabilinu og gert er ráð fyrir að hún haldi áfram næstu árin. Ýmsar áskoranir hafa fylgt móttöku flóttafólks frá Úkraínu og breytingar á lögum um jöfnunarsjóð hafa haft neikvæð áhrif á sveitarfélagið.