Ljósafell SU 70 kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði í fyrsta sinn í vikunni. Það er nýtt skip Loðnuvinnslunnar og kom hingað til lands frá Færeyjum þar sem unnið var að almennu viðhaldi.Loðnuvinnslan keypti skipið Þórunni Sveinsdóttur í fyrra af Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Skipið var smíðað í Danmörku 2010 og ber nú nafnið Ljósafell SU 70. Skipið fór frá Vestmannaeyjum til Færeyja í mars þar sem Loðnuvinnslan tók formlega við því og unnið hefur verið að almennu viðhaldi síðan.Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, segir komu skipsins þýðingarmikla fyrir samfélagið á Fáskrúðsfirði. Gamla Ljósafellið kom í vikunni úr síðustu veiðiferðinni með fullfermi en hefur nú verið selt.„Gamla skipið kvaddi og við gátum boðið nýja skipið velkomið algjörlega frábært augnablik.“