Meirihluti þingmanna á Evrópuþinginu samþykkti síðasta þriðjudag að hækka næstu sjö ára fjárlög Evrópusambandsins um 200 milljarða evra miðað við tillöguna sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði fram síðasta sumar. Fjárlögin eiga að taka gildi í byrjun árs 2028 og gilda til 2034.Tillaga framkvæmdastjórnarinnar var upp á um átján hundruð milljarða evra, en fjárlögin fara yfir tvö þúsund milljarða, verði útgáfa þingsins að veruleika.Afgreiðsla þingsins síðasta þriðjudag er hins vegar bara einn áfangi á þessari löngu vegferð, og það er nokkuð ljóst að fjárlögin - eins og þingið sér þau - eiga eftir að mæta talsverðri mótspyrnu; hópur aðildarríkja með Þýskaland í fararbroddi vilja lægri fjárlög en jafnvel þau sem framkvæmdastjórnin lagði til.„Evrópa getur ekki mætt morgundeginum með fjár