Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr dælu, úr 24 prósentum í 11, hefur tekið gildi. Miðað við verð í gær var áætlað að lítri af bensíni myndi lækka við það um 25 krónur að meðaltali, og lítri af dísilolíu um 30 krónur.Lækkunin er liður í tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissu og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Á síðunni gasvaktin.is, sem sækir verð á eldsneyti hjá flestum olíufélögum, sést að verð hjá Atlantsolíu, Olís, ÓB, Orkunni og N1 hefur almennt lækkað um á bilinu 26,5 til 27,8 krónur á lítrann af bensíni og 30,5 til 32,8 krónur af dísil frá því í gær.Samkvæmt yfirliti yfir ódýrasta eldsneytið í morgun kostar bensínlítri nú 202,30 krónur þar sem hann er ódýrastur, og dísilolía 244,60 krónur.Tímabundið lagaákvæði skyldar olíufélögin til að skila verðlækkun