Ísraelskum yfirvöldum er legið á hálsi að hafa framið sjórán og brotið gegn alþjóðalögum með því að stöðva Sumud-flotann með hjálpargögn til Gaza á alþjóðlegu hafsvæði nærri Grikklandi. Sú ákvörðun Ísraelshers að stöðva för flotans og handtaka almenna borgara á Miðjarðarhafi, hátt í þúsund kílómetra frá Gaza, markar hættulega og óvenjulega stigmögnun, að mati skipuleggjanda. Ísraelskir herbátar stöðvuðu flotann, sem ber neyðarbirgðir fyrir íbúa Gaza, nærri grísku eynni Krít aðfaranótt fimmtudags. Skipuleggjendur segja áhöfninni hafa verið rænt. Ísraelar tilkynntu í gær að 175 aðgerðarsinnar hefðu verið handteknir á meira en tveimur tugum báta en skipuleggjendur segja 211 í haldi, þar á meðal fulltrúi í borgarráði Parísar, Raphaelle Primet að nafni. FÓLKIÐ FLUTT TIL GRIKKLANDS Ísraelski