Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Öfurölvi maður handtekinn við að reyna að opna dyr bíla á ferð

Lögreglumenn handtóku í gærkvöld eða nótt öfurölvi mann sem reyndi að opna dyr bíla á ferð.Lögreglukonur á næturvakt í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚVHann var vistaður í fangaklefa uns hann getur verið meðal almennings, eins og það er orðað í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn jöfnuðu ágreining á staðnum eftir að farþegi leigubifreiðar í miðborginni neitaði að greiða fyrir farið og olli skemmdum á bílnum.Innbrot í verslun í Vesturborginni er til rannsóknar og þar var einnig tilkynnt um símastuld á sjúkrastofnun. Eitthvað var um ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu og einn ökumaður hlaut sekt fyrir að aka á 142 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er áttatíu.
Öfurölvi maður handtekinn við að reyna að opna dyr bíla á ferð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta