Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríska sendiráðið í Líbanon hvetur leiðtoga landsins til fundar við forsætisráðherra Ísraels

Sendiráð Bandaríkjanna í Beirút sagði fund leiðtoga ríkjanna veita stjórnvöldum í Líbanon gullið tækifæri til að tryggja yfirráð yfir öllu landinu, fullveldi sitt og landamæri, öryggistryggingu Bandaríkjanna, mannúðaraðstoð og liðsinni við uppbyggingu.Á sama tíma tilkynnti heilbrigðisráðuneyti landsins að minnst sautján hafa verið drepnir í árásum Ísraelshers, þrátt fyrir yfirstandandi vopnahlé. Sendimenn ríkjanna ræddu tvisvar saman í apríl með milligöngu Bandaríkjamanna í Washington, í fyrsta skipti í nokkra áratugi.Ísraelsmenn hófu árásir á Líbanon eftir að Hezbollah lögðu til atlögu til stuðnings Íran 2. mars og réðust loks inn í landið sunnanvert. Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti tíu daga vopnahlé eftir fyrri fundinn 17. apríl, og þriggja vikna framlengingu að loknum þeim síða
Bandaríska sendiráðið í Líbanon hvetur leiðtoga landsins til fundar við forsætisráðherra Ísraels

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta