Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkin segja stríðsátökum við Íran lokið

Bandaríkin líta svo á að stríðsátökum við Íran sé lokið að sögn ónafngreinds, háttsetts embættismanns innan ríkisstjórnarinnar í samtali við Reuters. Engin átök hafa verið milli ríkjanna eftir að vopnahlé komst á 7. apríl. Lögum samkvæmt ber Bandaríkjaforseta að fá samþykki þingsins fyrir áframhaldandi stríðsrekstri sextíu dögum frá því efnt er til hans, sem er í dag 1. maí. Heimildarmaðurinn segir að með því að lýsa átökum lokið þurfi ríkisstjórnin ekki að uppfylla þá lagaskyldu. Fréttin verður uppfærð um leið og frekar tíðindi berast.
Bandaríkin segja stríðsátökum við Íran lokið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta