Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vestmannaeyjaferjurnar sigla til Þorlákshafnar um helgina en ekki í Landeyjahöfn

Hvorki Herjólfur né Breiðafjarðarferjan Baldur geta siglt inn í Landeyjarhöfn um helgina þar sem dýpi er ekki nægilegt. Þess í stað sigla ferjurnar til Þorlákshafnar að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Herjólfs. Herjólfur leggur upp í fyrri ferð dagsins frá Vestmannaeyjum klukkan sjö og Baldur hálftíma síðar og aftur frá Þorlákshöfn klukkan ellefu og kortér yfir ellefu. Sérstaklega er tilkynnt að þeir hlauparar sem taka þátt í Puffin run á morgun, laugardag, þurfa að láta færa ferð sína í 08:45 ferð frá Þorlákshöfn.Landeyjahöfn hefur verið lokuð í næstum þrjá mánuði vegna sandburðar. Á meðan hefur verið siglt til Þorlákshafnar sem er mun lengri leið. Herjólfur er um 35 mínútur að sigla í Landeyjahöfn en tæpar þrjár klukkustundir í Þorlákshöfn. Dýpið var mælt í Landeyjarhöfn
Vestmannaeyjaferjurnar sigla til Þorlákshafnar um helgina en ekki í Landeyjahöfn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta