Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og skemmtikraftur, segir í yfirlýsingu á Facebook ekkert hæft í þeim fréttum mbl.is frá í gærmorgun að hann hafi fengið greitt fyrir að koma fram í þættinum Vikan með Gísla Marteini á RÚV 20. mars. Hið sama eigi við um Sigurjón Kjartansson sem kom fram með Jóni í atriðinu þar sem gert var grín að þeim sem hyggjast segja nei við ESB-aðild. Vísað hafi verið í fundargerð stjórnar RÚV þar sem Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hafi svarað fyrirspurn Ingvars Smára Birgissonar, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, þannig að Jón fengi greitt líkt og aðrir skemmtikraftar sem komi fram í ríkissjónvarpinu.Jón segir mbl.is hvorki hafa spurt sig né Sigurjón og sakar miðilinn um óvandaða blaðamennsku og að leika „pólitískan hráskinnaleik“ með Sjálfstæðisflokknum. „Það var með vilj