Í dag var síðasti þingfundadagur fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí og verður gert hlé á störfum Alþingis til miðvikudagsins 20. maí. Hlé hefur verið gert á þingstörfum til 20. maí.RÚV / Ragnar VisageSamkvæmt starfsáætlun voru 18. og 19. maí þingfundadagar en þess í stað verða nefndadagar báða þá daga. Þess í stað verða þingfundir 21. og 22. maí í stað nefndastarfa. Löng hefð er fyrir því að Alþingi taki hlé á störfum fyrir sveitarstjórnarkosningar sé þingstörfum ekki lokið áður.