Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, er sá oddviti sem flestir borgarbúar treysta. Fæstir treysta Sigfúsi Aðalsteinssyni, oddvita Okkar borgar.Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir Sýn.Sanna er eini oddvitinn í framboði í Reykjavík sem fleiri treysta en ekki. 40,4 prósent þátttakenda sögðust treysta Sönnu vel en 34 prósent treysta henni illa.Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, fylgir á eftir Sönnu en 30,3 prósent segjast treysta henni vel. Þar á eftir er Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sem nýtur trausts 28,4 prósenta borgarbúa.Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, nýtur trausts 25,3 prósenta og 20,9 prósent treysta Silju Sóleyju Birgisdóttur, oddvita Sósíalista.Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, og Kristni Jóni Ólafss